Hugbúnaðarsérfræðingur Verkefnastjóri Vefstjóri
Meira um mig
Tveggja barna faðir sem býr í Grafarvogi. Stelpurnar mínar eru fæddar 2013 og 2015. Hef brennandi áhuga á öllu er snýr að hlaupum, fjallgöngum, almennri hreyfingu ásamt eldamennsku og eftirréttum :)
Upplýsingar um mig
Ég útskrifaðist sumarið 2005 úr Háskólanum í Reykjavík með BSc gráðu í Tölvunarfræði. Eftir útskrift hóf ég störf sem Front-End Webdeveloper hjá TM Software sem síðan sameinaðist Nýherja og breyttist loks í Origo. Síðustu árin þar starfaði ég sem verkefnastjóri í Ferðalausnum Origo. Í apríl 2020 ákvað ég að söðla um og hóf störf sem vefstjóri hjá Þjóðskrá og er þar starfandi í dag.
Hér má sjá lista yfir náms- og starfsferil minn.
Apríl 2020 - Núna
Hef starfað hjá Þjóðskrá sem vefstjóri síðan í apríl 2020. Meðal verkefna sem ég hef stjórnað og komið að er nýtt útlit og brand á vefsíðu Þjóðskrár - www.skra.is, gerð markpósta, vefmælingar í Siteimprove, gerð ýmiss talnaefnis, innleiðing á spjallmenni ásamt fleiru.
Júní 2005 - Apríl 2020
Hóf störf hjá TM Software sumarið 2005 þegar ég útskrifaðist úr Háskólanum í Reykjavik. Hef komið nálægt ansi mörgu á þessum árum þar. Fókusinn hefur þó verið á Front-End development ásamt verkefnastjórnun. Meðal helstu kúnna sem ég hef unnið fyrir er t.d Icelandair og dótturfélög, Síminn, Íslandsstofa og margir fleiri.
Maí 2011 - Núna
Ég og fyrrverandi konan mín stofnuðum árið 2011 fyrirtækið Djásn ehf. sem rak tvær netverslanir, jqskart.is og brudkaupsdagur.is. Hef ég séð um allt er snýr að vefmálum fyrir þessar síður ásamt markaðssetningu á netinu, t.d með Facebook Ads og Google AdWords. Fyrri síðan, jqskart.is var netverslun sem seldi allt á milli himins og jarðar. Ég hef rekið hana í gegnum Prestashop vefverslunarkerfið allt frá upphafi og hef ég því talsverða reynslu á það kerfi. Seinni síðan, brudkaupsdagur.is er upplýsingasíða fyrir þá sem eru í brúðkaupshugleiðingum ásamt því að vera leiga og sala á fylgihlutum fyrir brúðkaup. Þá síðu hef ég rekið í gegnum Wordpress kerfið og WooCommerce fyrir söluna og leiguna.
1999 - 2002
Almenn verslunarstörf með skóla og svo fullt starf í 2 ár áður en ég byrjaði í Háskólanum í Reykjavík.
1994 - 1999
Vinna með skóla og sumarvinna
2002-2005
Stundaði nám við Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík á árunum 2002-2005. Frábær ár þar sem grunnurinn var lagður að mínum starfsferli.
1996-2000
Stúdent af félagsfræðibraut
1986-1996
Góð ár á Akureyri með smá viðkomu á Vopnafirði og Hrísey einnig.
Nokkrar myndir af mér og fjölskyldunni.
Fylltu út formið hér að neðan og ég svara eins fljótt og auðið er.
Flétturimi 21
112 Reykjavík
ÍSLAND
gunnargj@gmail.com
Sími: 867 7825